Matvælaráðuneytið opnar upplýsingavef um sjávarauðlindina

Matvælaráðuneytið hefur notað vefsíðuna audlindinokkar.is upplýsingasíðu um sjávarauðlindina. Á vefsíðunni má finna upplýsingar og gögn sem tengjast verkefninu Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ýtti úr vör í maí með skipan fjögurra starfshópa og samstarfsnefndar um sjávarútvegsstefnu. Verkefni hópanna SamfélagAðgengiUmgengni og Tækifæri er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.

Í tilkynningu segir að á síðunni megi meðal annars finna upplýsingar um upplegg og tilgang verkefnisins, skipan starfshópa og samráðsnefndar. Einnig er að finna á síðunni yfirgripsmikið gagnasafn um sjávarútveg. Þar má nálgast gögn og fundargerðir starfshópa og samráðsnefndar, ásamt lögum, dómum, frumvörpum, álitum og úrskurðum. Jafnframt er þar að finna yfirlit yfir þá hagaðila sem starfshóparnir hafa rætt við.

Þá segir að í verkefninu Auðlindin okkar sé lögð áhersla á opna, þverfaglega og gagnsæja nálgun. Því séu allir þeir sem áhuga hafa hvattir til að hafa samband í gegnum síðuna eða netfangið audlindinokkar@mar.is til að koma skoðunum, upplýsingum eða spurningum á framfæri.

Vinna starfshópa og samstarfsnefndar hófst í júní og gert er ráð fyrir að endanleg afurð þeirra vinnu líti ljós sem frumvörp til Alþingis vorið 2024.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila