Telja starfsþróun kennara og skýra námsskrá skipta mestu máli

Frá fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Önnu Ekström, menntamálaráðherra Svíþjóðar sem funduðu í Stokkhólmi í vikunni.

Starfsþróun kennara og skýr námsskrá er það sem mestu máli skiptir þegar kemur að gæðum innan menntakerfisins. Þetta kom fram á fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Önnu Ekström, menntamálaráðherra Svíþjóðar sem funduðu í Stokkhólmi í vikunni. Markmið heimsóknar ráðherra var að kynna sér árangur nemenda í PISA könnunarprófunum og áherslur Svía í því samhengi. Árangri sænskra nemenda í prófunum hrakaði verulega árið 2012 en með umfangsmiklum aðgerðum og einbeittum vilja tókst Svíum að snúa við blaðinu og náðu sænskir nemendur mjög góðum árangri í prófunum 2018.

Svíar lögðu megináherslu á tvennt. Annars vegar skýra aðalnámskrá sem tryggir gæði í skólastarfi. Í því samhengi er mikilvægt að menntamálayfirvöld tryggi að skólasamfélagið fái faglegan stuðning til að fylgja henni eftir sem og að foreldrar nemenda hafi þekkingu á námskránni. Hins vegar gerðu Svíar stórátak í markvissri starfsþróun kennara sem skilað hefur miklum árangri. Anna Ekström veitti okkur gagnlega innsýn í uppbyggingu menntakerfisins og hvað raunverulega skipti máli þegar kom að því að styrkja nemendur í lestri, stærðfræði og náttúruvísindum. Íslensk stjórnvöld hafa mikinn metnað í menntamálum enda er gæðamenntun lykillinn að velsæld framtíðarinnar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.  

Í kjölfar birtingar niðurstaðna PISA könnunarprófanna í desember sl. kynnti ráðherra aðgerðir sem miða að því að efla læsi og bæta orðaforða og málskilning íslenskra nemenda. Þær felast meðal annars í að:

• Efla starfsþróun kennara.
• Fjölga kennurum með sérhæfða þekkingu.
• Endurskoða námsefni og fyrirkomulag námsefnisgerðar.
• Stórauka áherslu á orðaforða í öllum námsgreinum.
• Fjölga kennslustundum í íslensku og endurskoða inntak íslenskukennslu.
• Stofna fagráð í læsi, stærðfræði og náttúruvísindum.
• Efla menntarannsóknir.
• Auka væntingar til nemenda.
• Auka samstarf allra hagsmunaaðila.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila