Ný skoðanakönnun Trafalgar Group sýnir að mikill meirihluti Bandaríkjamanna er andvígur hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna í Úkraínu.
Þrátt fyrir stríðsæsingu í falsfréttamiðlum og öll stríðshrópin frá Biden-stjórninni, þá hafa Bandaríkjamenn enga löngun til að hefja stríð við Rússland.
Aðeins 15% kjósenda vilja hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Úkraínu.
Kannski hefur það eitthvað með það að gera, að núverandi stjórn klúðraði Afganistan, gafst upp fyrir talibönum og vopnaði þá nútíma vopnum fyrir milljarða dollara.
The Trafalgar Group framkvæmir nákvæmar skoðanakannanir í Bandaríkjunum og hefur birt niðurstöður nýrrar landskönnunar um afstöðu Bandaríkjamanna til hugsanlegra hernaðarafskifta Bandaríkjanna af Úkraínu. Könnunin var gerð 12. – 14. janúar meðal yfir þúsund væntanlegra kjósenda í kosningunum 2022.
Bandaríska þjóðin hefur mikla visku til að skilja eðli erlendra ógna
Mark Meckler, sem fer fyrir samstarfshópi fyrir sjálfstæði ríkja segir:
„Leiðtogar okkar gleyma því oft, að bandaríska þjóðin hefur mikla visku til að skilja eðli erlendra ógna. Kjósendur í öllum flokkum standa alfarið á bak við hernaðarvarnir Bandaríkjanna fyrir frjálsu og lýðræðislegu Taívan, jafnvel þó að því fylgi mikil áhætta – og hugsanlega mikill kostnaður fyrir þjóð okkar – gegn vaxandi ógn frá Kína. Hins vegar, þó kjósendur hafi greinilega samúð með Úkraínu og styðji aðstoð við þá með diplómatískum hætti og öðrum leiðum, þá er enginn stuðningur við hernaðaríhlutun Bandaríkjanna ef átök verða við Rússland. Biden-stjórnin ætti að taka mark á því.“
Yfirgnæfandi meirihluti Bandaríkjamanna styðja ekki hernaðaríhlutun Bandaríkjanna gegn Rússlandi ef Rússar ráðast á Úkraínu
- 84.8 % bandarískra kjósenda telja að Bandaríkin ættu að hafa takmarkaða þátttöku ef Rússland ræðst inn í Úkraínu:
- 31.1 % telja að Bandaríkin ættu að útvega vistir og hervopn
- 30.5 % telja að Bandaríkin ættu aðeins að beita diplómatískum þrýstingi
- 23.2 % telja að Bandaríkin ættu að senda bandaríska herráðgjafa
- Aðeins 15,3 % bandarískra kjósenda telja, að senda eigi bandaríska hermenn ef Rússar ráðist inn í Úkraínu.
Þegar afstaða Bandaríkjamanna til hernaðaríhlutunar varðandi Taívan er allt annað hljóð í strokknum: 58,1% styðja hernaðaríhlutun Bandaríkjanna til að verja Taívan ef Kína gerir árás á landið.