Tvö lén í Svíþjóð, Sörmland og Gävleborg, hafa ákveðið að hætta að nota bóluefnið frá Astra Zeneca vegna mikilla aukaverkana. Á föstudaginn stöðvaði Sörmland allar frekari bólusetningar með Astra Zeneca bóluefninu. Daginn áður höfðu 400 starfsmenn Kullberska sjúkrahússins fengið sprautuna og 100 þeirra gátu ekki mætt til vinnu á eftir vegna veikinda. Voru þeir með mikinn hita og vanlíðan og óvinnufærir. „Við hættum tímabundið að nota bóluefnið á meðan þetta verður rannsakað nánar og einnig til að við höfum nægjanlega marga fríska starfsmenn í vinnu“ segir Magnus Johansson yfirmaður lyfja á svæðinu í viðtali við SVT. Gävleborg hefur einnig ákveðið að stöðva bólusetningar með bóluefninu og að auki koma fregnir frá þriðja léninu Jönköping um ótrúlegar miklar aukaverkanir eftir að 500 manns fengu sprautuna þar.
Segjast ætla að athuga málið
Andreas Heddini yfirmaður hjá Astra Zeneca á Norðurlöndum segist leiður vegna allra frétta af aukaverkunum og segir að fyrirtækið hafi ekki reiknað með aukaverkunum yfir 10%. Fyrirtækið mun nú athuga þessar útbreiddu aukaverkanir hjá allt að 30% þeirra sem bólusettir voru með bóluefni þeirra. Hann vill ekki velta orsökunum fyrir sér og segir að fyrirtækið taki öllum ábendingum alvarlega „en núna hafa milljónir manns verið bólusettir með efninu okkar og við höfum ekki orðið varir við neinar alvarlegar aukaverkanir.“