Erik-Stefan Sagelind einn talsmanna mótmælenda í Stokkhólmi fyrir hálfum mánuði síðan, segir að á mörgun muni mótmæli fara fram á þremur stöðum í Svíþjóð til að mótmæla skerðingu frelsis og mannréttinda í nafni veirunnar frá Kína. Svíþjóð er bara eitt af 40 löndum, sem meiningin er að efna til sams konar mótmæla. Segir Sagelind að „Öllu er stjórnað frá Þýskalandi, þar sem er nokkurs konar stjórn. Þetta verða mikil mótmæli sem meiningin er að fram fari í 40 löndum.“
Kröfur mótmælanna eru fimm mikilvægir þættir mannréttinda og frelsis:
- Málfrelsi
- Ferðafrelsi
- Valfrelsi
- Þingfrelsi
- Heilsufrelsi
Mótmælendur vilja að yfirvöld hætti öllum lokunum og öðrum gerræðislegum ákvörðunum sem skerða frelsi og mannréttindi.
Minnisstund og bæn fyrir alla sem látist hafa í covid
Sagelind sem er kristinn maður segir að allra þeirra sem látist hafa úr veirunni verði sérstaklega minnst: „Við munum halda minnisstund fyrir þá sem hafa dáið í covid, vegna ólíkra áhrifa allra lokana og aukaverkana af bóluefnum. Það verður minnisstund og bæn fyrir land vort. Þetta snýst ekki lengur um hægri eða vinstri. Það eru að sjálfsögðu bæði hægri- og vinstrimenn með í mótmælahópunum en allir eru samtaka í því að starfa saman ofar flokkadráttum.“
Sagelind segir lögregluna hafa verið óþarfa harðhenta við fyrri mótmæli fyrir hálfum mánuði síðan: „Mér finnst skammarlegt af lögreglunni að bregðast við á þann hátt. Við erum ekki óvinir lögreglunnar. En það varð flöskuháls á Gullbrúnni og myndaðist þrýstingur aftan til þegar sífellt fleiri komu á staðinn.“
Löndin sem áætlað er að mótmæla í á morgun – einnig á Íslandi
Sjá link á facebook um íslenska aðild að mótmælunum https://www.facebook.com/worldfreedomalliance/videos/251185896690886
Listi landanna fjörtíu á ensku hér að neðan.
Argentina
Australia
Austria
Belgium
Brazil
Canada
Croatia
Cyprus
Czech Republic
Denmark
England
Estonia
Finland
France
Germany
Greece
Iceland
Ireland
Israel
Italy
Latvia
Lebanon
Lithuania
Luxembourg
Montenegro
Netherlands
New Zealand
North Macedonia
Norway
Poland
Portugal
Romania
Scotland
Serbia
Slovenia
South Africa
Spain
Sweden
Switzerland
Ukraine
United States
Uruguay
Sjá nánar hér