Myndbönd af kjörstöðum í Reykjavík og aðrar gagnlegar upplýsingar fyrir kjördag

Kosið verður til Alþingis nú á laugardaginn, 25. september. Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavík, þar af fimm nýjum.

Kjörstaðir í Reykjavík verða opnir frá kl. 9-22 á laugardaginn og á vef Reykjavíkurborgar (reykjavik.is/kosningar) er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar. Þar er til dæmis hægt að slá inn heimilisfang í leitarglugga til að finna sinn kjörstað og skoða á korti tillögu að gönguleið á kjörstað, vegalengd hennar og staðsetningu næstu strætóbiðstöðvar. Einnig má nálgast upplýsingar um kosningar í Reykjavík í síma 411-4915 eða með pósti á netfangið kosningar@reykjavik.is.

Þar sem kjörstöðum hefur fjölgað um fimm (Frostaskjól, Höfðatorg, Álftamýrarskóli, Foldaskóli og Rimaskóli) eru kjósendur eindregið hvattir til að fletta upp hvar þeir eiga að kjósa. Í mörgum tilfellum hefur kjörstaðurinn færst nær heimilinu, sem er í samræmi við stefnu borgarinnar um að bæta aðgengi að kjörstöðum og hvetja til vistvænna samgangna.

Vakin er athygli á að Landskjörsstjórn hefur breytt kjördæmamörkum Reykjavíkurkjördæmanna (https://www.landskjor.is/landkjorstjorn/frettir-tilkynningar/auglysing-um-mork-kjordaema-i-reykjavik). Áhrifin eru þau að kjósendur í Grafarholti, sem búsettir eru fyrir norðan Kristnibraut en vestan Jónsgeisla, kjósa nú í Reykjavíkurkjördæmi suður, en ekki norður eins og áður. Kjörstaður breytist þó ekki.

Að kjörfundi loknum fer talning fram í Laugardalshöll. Hún er öllum opin og verður streymi frá talningunni á vef borgarinnar, reykjavik.is.

Aðgengis- og samráðsnefnd fatlaðs fólks í Reykjavík safnar ábendingum um aðgengismál kjörstaða hér: https://betrireykjavik.is/community/3465.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í Kringlunni og Smáralind, Kópavogi og er opið kl. 9-22 alla daga.

Smella má hér til þess að horfa á myndbönd frá kjörstöðum

Kjörstaðir Reykjavíkurkjördæmanna.

Reykjavíkurkjördæmi norður

Álftamýrarskóli, 2 kjördeildir

Borgaskóli, 5 kjördeildir

Dalskóli, 2 kjördeildir

Foldaskóli, 6 kjördeildir

Höfðatorg, 2 kjördeildir

Ingunnarskóli norður, 1 kjördeild

Kjarvalsstaðir, 4 kjördeildir

Klébergsskóli, 1 kjördeild

Laugalækjarskóli, 5 kjördeildir

Menntaskólinn við Sund, 5 kjördeildir

Ráðhús, 9 kjördeildir

Rimaskóli, 3 kjördeildir

Vesturbæjarskóli, 2 kjördeildir

Reykjavíkurkjördæmi suður

Árbæjarskóli, 6 kjördeildir

Borgarbókasafnið í Kringlunni, 2 kjördeildir

Breiðagerðisskóli, 7 kjördeildir

Breiðholtsskóli, 3 kjördeildir

Frostaskjól, 4 kjördeildir

Hagaskóli, 5 kjördeildir

Hlíðaskóli, 4 kjördeildir

Ingunnarskóli suður, 3 kjördeildir

Íþróttamiðstöðin Austurbergi, 6 kjördeildir

Norðlingaskóli, 2 kjördeildir

Ölduselsskóli, 6 kjördeildir

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila