Könnun: Telja að Ísland eigi að gera þá kröfu að Tyrklandi verð vísað úr NATO

Höfuðstöðvar NATO í Brussel

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Ísland eigi að gera þá kröfu að Tyrklandi verði vísað úr NATO vegna árása þeirra á kúrda.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Ísland að gera kröfu um að Tyrklandi verði vísað úr NATO vegna árása á kúrda?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 84,2%

Nei 10,4%

Hlutlaus 5,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila