Nói Síríus innkallar súkkulaði

Sælgætisgerðin Nói Síríus hefur sent frá sér tilkynningu þar sem biðlað er til þeirra sem keypt hafa súkkulaði af vissum tegundum frá Nóa að skila þeim inn til fyrirtækisins vegna aðskotahlutar sem fannst í einni gerð af vörutegund, nánar tiltekið plaststykki sem brotnaði vegna bilunar í vélbúnaði.

Í tilkynningu segir að í flestum tilvikum ætti plastið að vera sjáanlegt neytendum sé það í vörunni en það er ýmist blátt eða bleikt að lit. Hér að neðan má sjá lista yfir þær vörur sem fyrirtækið vill að skilað verði inn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila