Ísland tekur að sér formennsku í Norrænu ráðherranefndinni ári fyrr en áætlað var

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu og sveitarstjórnarráðherra

Ísland mun taka að sér formennsku í Norrænu ráðherranefndinni ári fyrr en áður hafði verið ráðgert eða árið 2023. Norðurlöndin skiptast á að sinna því hlutverki og því veitir Ísland norrænu samstarfi formennsku á fimm ára fresti. Eftir að hafa verið í formennsku í fyrra hefði röðin næst komið að Íslandi árið 2024. Sænsk stjórnvöld, sem venju samkvæmt hefðu átt að vera í formennsku ári áður, óskuðu á hinn bóginn eftir því að skipta við Ísland á formennskuárum meðal annars vegna þess að Svíþjóð mun gegna formennsku í ráðherraráði ESB á seinni hluta árins 2023.

Þetta er gott mál því formennskan í Norðurlandasamstarfinu styður við margvíslega íslenska hagsmuni. Ég er sannfærður að við getum nýtt okkur þetta vel,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda.

Sem formennskuríki getum við sett okkar áherslumál á dagskrá í norrænni samvinnu. Svo felst í formennskunni að mikill fjöldi funda og viðburða færist til Íslands. Á formennskuárinu í fyrra fóru hátt í 200 fundir fram á Íslandi, um allt land, sem um 3.500 manns sóttu. Það munar sannarlega um það fyrir okkar ferðaþjónustu og það mun líka senda jákvæð skilaboð til umheimsins. Svo er ánægjulegt að geta veitt vinaþjóð okkar Svíum liðsinni með þessum hætti.“

Gert er ráð fyrir að virkur undirbúningur fyrir formennskuárið hefjist næsta haust 2021 og svo hefst formennskan hinn 1. janúar 2023.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila