Ný gagnabraut verður einn af lykilinnviðum ríkisins

Sim Sikkut aðstoðarráðuneytisstjóri í upplýsingatæknimálaráðuneyti Eistlands, Anna-Maija Karjalainen skrifstofustjóri í finnska fjármálaráðuneytinu, Ville Veikko Matias Sirviö forstjóri NIIS og Bjarni Benediktsson, að undirritun lokinni.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur undirritað samning við NIIS stofnunina um samstarf við Eistland og Finnland um að hefja notkun gagnabrautarinnar Straumsins (X-Road). Fram kemur í tilkynningu að með þessu batni samvirkni milli upplýsingakerfa stofnana, svo ekki þarf lengur að veita sömu upplýsingar á fleiri en einum stað og hið opinbera þarf ekki að óska eftir upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem það býr þegar yfir.

Ríkið er að styrkja miðlægu þjónustugáttina Ísland.is, þar sem einstaklingar og fyrirtæki munu geta sótt nær alla opinbera þjónustu með stafrænum hætti þvert á stofnanir. Með Straumnum geta upplýsingar flætt á milli stofnana og þannig sparast tími fyrir fólk og fyrirtæki sem annars færi í að fylla út eyðublöð og ferðast milli staða,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Þá segir í tilkynningunni að straumurinn verði einn af lykilinnviðum ríkisins og ein helsta tæknilega forsendan fyrir bættri þjónustu hins opinbera. Straumurinn, eða X-Road, er þróaður af Eistum og Finnum með opinbera þjónustu í huga. X-Road hefur verið í notkun í um 15 ár og með nýtingu þess hafa Eistland og Finnland skipað sér í fremstu röð þjóða þegar kemur að veitingu stafrænnar opinberrar þjónustu. Gert er ráð fyrir að með innleiðingu á Straumnum verði Ísland með samskonar gagnabraut og þessar þjóðir sem gefur möguleikann á að samtengja þjónustu á milli þessara landa.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila