Ekkert lát er á ofbeldisverkum í Svíþjóð frekar en undanfarin ár og eru nú ofbeldisverk og árásum gagnvart viðkvæmum þjónustuþáttum innan opinbera kerfisins hefur einnig farið talsvert fjölgandi á síðustu misserum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Gústafs Skúlasonar fréttaritara í Stokkhólmi í þættinum heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.
Um helgina var ein slík árás gerð á heilsugæslustöð og varð tveimur eldri borgurum að fjörtjóni. Til þess að bæta gráu ofan á svart kom einn forsprakka arabísks stjórnmálaflokks fram opinberlega fyrir helgi og lét þau ummæli falla að ef að Svíþjóðardemókratar komist til valda muni félagar í arabíska flokknum setja af stað stríð innanlands.
Gústaf segir málið litið alvarlegum augu þó Krar Al-Hamede sem lét hin umdeildu ummæli falla hafi komið fram og sagt orð sín hafa verið lélegt grín
“ þetta er litið alvarlegum augum, og þó þessi maður hafi afneitað þessum ummælum sínum og borið við að þau væru grín þá geta öfgamenn sem hlýða á þessi orð tekið þessa stefnu upp„,segir Gústaf.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum í spilaranum hér að neðan