Opna fyrir nýliðastyrki í landbúnaði

Opnað hefur verið fyrir þann möguleika að þeir sem hyggi á að hefja búrekstur sem nýliðar geti nú fengið til þess styrki, í þeim tilgangi að auðvelda nýliðum að fóta sig á sviði landbúnaðarframleiðslu.

Talsvert hefur verið fjallað um það undanfarin ár hversu erfitt sé fyrir ungt fólk að hefja búrekstur sökum mikils kostnaðar við að hefja slíkan rekstur, enda séu tæki, bústofn og jarðir afar dýrar og ljóst að ef ekki hafi verið gripið inn í hefði nýliðum haldið áfram að fækka jafnt og þétt.

Þeir einstaklingar einir geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur:

  1. Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað
  2. Eru á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi.
  3. Eru að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar á umsóknarári.
  4. Hafa ekki áður hlotið nýliðunarstuðning samkvæmt reglugerð þessari að teknu tilliti til 17. gr.
  5. Hafa ekki hlotið nýliðunarstuðning í mjólkurframleiðslu eða bústofnskaupastyrki til frum­býlinga í sauðfjárrækt samkvæmt þágildandi reglum árin 2015-2016.
  6. Hafa með sannarlegum hætti lagt út fyrir fjárfestingu annaðhvort með eigin fé eða lántöku.

Fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:

  1. Yfirlýsing um að umsækjandi sé nýliði.
  2. Upplýsingar um eignarhald lögaðila úr fyrirtækjaskrá RSK, sé um lögaðila að ræða.
  3. 5 ára rekstraráætlun með greinargerð, unnin af fagaðila, svo sem Ráðgjafarmiðstöð land­búnaðarins.
  4. Afrit af þinglýstum kaupsamningi vegna fjárfestingar sem óskað er stuðnings við.
  5. Afrit af reikningum fyrir kaupum.
  6. Afrit af leigusamningi, ef við á.

Þá er áhugasömum umsækjendum bent á að kynna sér breyttar forgangsreglur.

Umsóknum skal skila inn á www.afurd.is greiðslukerfi landbúnaðarins og er umsóknarfrestur 1. september n.k,

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila