Opna Suðurstrandaveg með takmörkunum

Suðurstrandarvegur verður opnaður með takmörkunum í kvöld mánudaginn 22. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í tilkynningunn segir að einstefna verði á veginum frá lokuninni sem verið hefur við bæinn Hraun Grindavíkurmegin en tvístefna verður frá vegamótunum við Krýsuvíkurveg í vestur að Ísólfsskála sem verður þá nálægt þeim stað þar sem mögulegt verður að leggja bílum t.d. út í kant á veginum ef ætlunin er að skoða gosið í Geldingadal. 

Á leiðinni milli Grindavíkur og gosstöðvanna þar sem verður einstefna er fólk beðið að stöðva hvorki né leggja bifreiðum sínum fyrr en eftir að komið er yfir Festarfjall, eða eftir í fyrsta lagi 2 km frá Hrauni. Hámarkshraði verður 50 km á klukkustund. Þungatakmarkanir eru í gildi og miðast við 7tonna ásþunga. Engar takmarkanir eru ef komið er að austanverðu. Þeir sem aka frá Grindavík og austur um þurfa síðan að aka áfram austur á bakaleiðinni og taka þá Krýsuvíkurveg til að komast til Reykjavíkur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila