Einstaklingar sem bólusettir hafa verið gegn Covid-19 geta frá og með deginum í dag gengið að bólusetningarvottorði vísu inn á vef Heilsuveru. Í tilkynningu segir að vottorðið sé að efni og útliti í samræmi við evrópska staðla og alþjóðlega bólusetningarskírteinið.
Markmiðið með útgáfu vottorðanna er að greiða för fólks milli landa, þannig að einstaklingar geti framvísað bóluefnarvottorði á landamærum og séu þá undanþegnir sóttvarnaráðstöfunum vegna COVID-19 í samræmi við reglur hlutaðeigandi lands.
Eins og kynnt var í liðinni viku hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að bólusetningarvottorð sem uppfylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis og eru gefin út í í EES/EFTA-ríki verði tekin gild á landamærum Íslands. Þeir sem framvísa slíku vottorði eru undanþegnir opinberum sóttvarnaráðstöfunum á landamærum og er þannig ekki skylt að fara í sýnatöku við landamæri.
Í tilkynningunni segir að þeir sem ekki geta nýtt sér heilsuveru til að sækja sér rafrænt bólusetningarvottorð geta fengið vottorð hjá heilsugæslunni um að þeir séu fullbólusettir.