Fjallað um norrænt menningarsamstarf og mikilvægi tungumála á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar

Jenis av Rana frá Færeyjum, Trine Skei Grande frá Noregi, Ane Lone Bagger frá Grænlandi, Rasmus Prehn frá Danmörku, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Hanne Kosonen frá Finnlandi, Tony Asumaa frá Álandseyjum og Helene Öberg frá Svíþjóð skipa norræna ráðherranefnd um menningarmál.

Norræna ráðherranefndin sem nú fundar ræddi meðal annars um menningarmál,  þróun norræns menningarsamstarfs til framtíðar og hvernig stuðla megi að sjálfbærri þróun í anda nýrrar framtíðarsýnar Norrænu ráðherranefndarinnar.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra stýrði fundinum en Ísland fer með formennsku í ráðinu um þessar mundir.

Á fundinum var einnig rætt um málskilning á Norðurlöndum og Volt menningar- og tungumálaáætlun ráðherranefndarinnar fyrir börn og ungmenni. Volt-áætlunin styrkir verkefni þar sem listræn sköpun og þátttaka ungs fólks er í fyrirrúmi en markmið þess er að auka skilning ungmenna á tungumálum og menningu Norðurlanda.

Mikilvægi tungumála er rauður þráður í formennskuáætlun okkar og það sköpuðust góðar umræður á fundinum. Við vinnum að því nú að efla íslenskuna og það var fróðlegt að heyra um viðhorf, áskoranir og áherslur hinna ráðherranna þegar kemur að móðurmálum og gagnkvæmum málskilningi á Norðurlöndunum. Ég tel mikilvægt að við vinnum vel saman að þeim málum og fundir sem þessir eru kærkomið tækifæri til þess,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila