Bjarni Benediktsson fundaði um græn skuldabréf með evrópskum fjármálaráðherrum

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ásamt fulltrúum EFTA-ríkjanna á fundinum í Brussel í gær.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sótti í gær árlegan fund ráðherra fjármála- og efnahagsmála í ríkjum Evrópusambandsins, Ecofin, og EFTA. Fundurinn fór fram í Brussel.

Á fundinum var einkum rætt um sjálfbær fjármálakerfi og græna fjármögnun ríkjanna. Einnig var farið yfir stöðu efnahagsmála í EFTA-ríkjunum. Fjármála- og efnahagsráðherra ræddi stöðu og þróun efnahagsmála á Íslandi auk þess að greina fyrstu útgáfum grænna skuldabréfa á Íslandi, en Landsvirkjun hefur nýlega lokið við útgáfu slíkra bréfa. Í fréttatilkynningu er ekki tilgreint nánar hvað felst í slíkum bréfum.

Í tengslum við fundinn var einnig haldinn sérstakur fundur fjármálaráðherra EFTA ríkjanna þar sem var m.a. rætt um framkvæmd EES-samningsins og innleiðingu evrópureglugerða í löndunum. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila