Rauði krossinn opnar fjöldahjálparstöð fyrir hælisleitendur

Rauði krossinn á Íslandi hefur að beiðni stjórnvalda opnað fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Er það gert vegna mikillar fjölgunar á komu flóttafólks til landsins, meðal annars vegna átakanna í Úkraínu, samhliða skorti á íbúðarhúsnæði fyrir flóttafólk. Gert er ráð fyrir að fólk gisti í fjöldahjálparstöðinni í takmarkaðan tíma og fari þaðan í önnur húsnæðisúrræði.

Fram kemur í tilkynningu að fjöldahjálparstöðin verði staðsett í herbergjum í skrifstofuhúsnæði í Borgartúni. Húsnæðið sé á nokkrum hæðum og þyki henta verkefninu vel. Gert er ráð fyrir sérstakri aðstöðu fyrir fjölskyldufólk.

Rauði krossinn á Íslandi gegnir stoðhlutverki við stjórnvöld í almannavörnum og hlutverk félagsins felst meðal annars í opnun og starfrækslu fjöldahjálparstöðva. Það er því Rauði krossinn sem sér um og rekur fjöldahjálparstöðina í Borgartúni en í nánu samstarfi við Vinnumálastofnun, sem þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sem fer með málaflokkinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila