Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er versti borgarstjóri í sögu borgarinnar. Þetta kom fram í máli Bolla Kristinssonar fyrrverandi kaupmanns og Gunnars Gunnarssonar talsmanns aðgerðarhópsins Björgum miðbænum í síðdegisútvarpinu í dag en þeir voru gestir Arnþrúðar Karlsdóttur.
Þeir benda á að samráðsleysi meirihlutans í borginni vera hrópandi, og ekki eingöngu þegar kemur að lokun Laugavegar, heldur á fleiri sviðum, eins og til dæmis hvað varði framkvæmdir í Elliðaárdal. Þeir segja lokun Laugavegar hafa haft afar slæm áhrif á verslanir á svæðinu og þeim sem stunda þar kaupmennsku fækki jafnt og þétt, afleiðingarnar séu þær að nú þrífist þar afar fábreytt verslunarumhverfi
“ það bætast eingöngu við lundabúðir á lundabúðir ofan„.
Vilja fara sömu leið og kaupmenn í miðbæ Akureyrar
Þeir Bolli og Gunnar telja að lokun á vissum tímum sé alls ekki slæm hugmynd, heldur sé lykilatriði að til þess að vel takist þurfi að vega og meta hverju sinni hvenær loka eigi og það ætti að vera í höndum verslunareiganda líkt og gert sé á Akureyri
“ þar loka þeir þegar veður er gott og þar hafa menn komið sér saman um hvernig eigi að standa að þessum lokunum, menn ræða bara saman og koma sér saman hvenær heppilegur tími sé til þess að breyta götunni í göngugötu, og það getur gerst jafnvel 3svar á dag, eftir því hvernig veður sé hverju sinni.“ segja þeir Bolli og Gunnar.
Þá vilja þeir að það verði frí bílastæði á ákveðnum svæðum í borginni til þess að laða fólk að, til dæmis megi stæði nálægt verslunargötum vera gjaldfrjáls.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.