„Verið er að undirbúa blóðugasta stríð eftir seinni heimstyrjöldina. Bandaríkin blása í herlúðrana án þess að hafa nokkra beina eigin hagsmuni.“
Óhætt má fullyrða að viðtal Tucker Carlson í vikunni við Rússlandssérfræðinginn Clint Erlich um ástandið í Úkraínu hafi verulega hrært upp í Bandaríkjamönnum.
Biden-stjórnin hefur tilkynnt, að hún sé að undirbúa að berjast gegn Rússum innan Úkraínu með stefnu, sem byggir á aðferðinni sem notuð var, þegar Bandaríkin börðust við Sovétmenn í Afganistan. Ætlunin er að þjálfa uppreisnarmenn í búðum innan nærliggjandi aðildarríkja NATO og senda þá yfir landamærin til Úkraínu með vopn, sem NATO lætur þeim í té. Talið er að það dragi úr hættu á beinum hefndum gegn Bandaríkjunum.
Þannig er herkænskan á pappírnum – en hvað gerist þegar Rússar magna ástandið og hefja eigin árásir yfir landamærin og drepa herafla NATO í nærliggjandi löndum? Munu Bandaríkin standa aðgerðarlaus þá? Eða verða þeir komnir of djúpt í málin til að geta snúið við?
Þessi viðkvæmu mál ræddi hinn heimskunni Tucker Carlson á Fox News við Rússlandssérfræðinginn Clint Erlich í þætti sínum s.l. miðvikudag. Báðir voru sammála um að stríðshaukarnir í djúpríki Washington og megin fjölmiðlar gera allt til þess að æsa upp til beinna stríðsátaka.
Málið er eiginlega ekkert flókið: – Úkraína má ekki ganga í NATO.
„Ég myndi segja að það er sjónarhorn Rússa, en hérna megin er fólk, sem heldur því fram að jafnvel þótt Rússar ráðist ekki inn í Úkraínu, þurfum við að gera árás á Rússa og reka þá út úr Krímskaga – þetta var athugasemd frá fv. háttsettum embættismanni í ríkisstjórn Obama í vikunni.
Ég myndi segja, að málið sé jafnvel einfaldara en svo, – við erum að fást við eigin stríðsæsingamenn okkar – óábyrgt fólk sem getur orsakað dauðans alvarlegar afleiðingar.
Þeir lýsa sér gjarnan sem kaldastríðsmönnum, en höfundurinn að stefnu Bandaríkjanna í kalda stríðinu – George Kennon – varaði við því, að stækkun NATO gæti dregið okkur í styrjöld við Rússland. Og viðvörun hans hefur nú verið staðfest, við erum á heljarbrún slíkra átaka. Þannig að það er góð spurning: Af hverju ættum við að hlusta á þetta fólk?“
NATO hefur engan áhuga að fá spillta Úkraínu sem meðlim
Tucker spyr Erlich hvort það sé eitthvað, sem hann sjái að vanti í stöðunni – til dæmis einhverjir knýjandi hagsmunir Bandaríkjanna, sem væri framfylgt með því að fá Úkraínu inn í NATO – en því miður, slíka hagsmuni hafa ekki Bandaríkin.
„Það er háðslegt að NATO hefur ekki einu sinni áhuga á, að Úkraína gangi í bandalagið. Úkraína er spillt land, því fylgir meiri ábyrgð en nýting í hernaðarlegum tilgangi. Fólkið sem er að kynda undir átök heldur því fram, að fara verði í átök vegna þess að Rússar eigi ekki að hafa neitunarvald yfir því hverjir eru með í NATO. Með öðrum orðum, jafnvel þegar það eru gagnkvæmir hagsmunir okkar að hafa ekki ríki með í NATO, þá verðum við samt að krefjast þess að þeim verði bætt við bara til að hefnast á Rússum.“
Verra en „brjálæði“ – gengið sofandi til átaka við land með meira en 4.000 kjarnorkuvopn
Tucker spyr hvort Elrich – í faglegu „mati“ sínu – telji, að allt ástandið sé bara algjört „brjálæði“? Orðið brjálæði nær ekki yfir faglegt mat Elrichs. Elrich er djúpt hrærður yfir því, að fólk skuli ekki vera í uppnámi vegna þessarar hættulegu stigmögnunar:
„Tucker, þetta er ekki bara brjálæði heldur er þetta stórhættulegt. Ég meina við göngum sofandi í átt að átökum við land sem hefur meira en 4.000 kjarnorkuvopn. Rússar voru að tala um að hugsanlega senda herafla til Kúbu og Venesúela, sem er endurtekning á eldflaugakreppunni á Kúbu. Þess vegna er það átakanlegt, að fólk skuli ekki vera í meira uppnámi vegna þess að lífi Bandaríkjamanna er ógnað án þess að skýrir þjóðarhagsmunir liggja fyrir.
…við höfum ekki átt í stríði í eigin landi en Rússar hafa gert það. Þeir skilja raunveruleika stríðs og hvernig það er að missa milljónir manna í átökum. Einhvern vegin ímynda stjórnmálamenn okkar sér, að stríð nái aldrei til okkar. Raunveruleikinn er hins vegar sá, að þú og ég erum í hættu vegna þessara átaka, Tucker. Fólkið sem við elskum er í hættu og það er bara ótrúlega áreitandi, að þetta skuli vera að gerast.“
Sjá má viðtal Tuckers við Clint Elirch hér að neðan.