RÚV og aðrir evrópskir fjölmiðlar samræma fréttaflutning sinn í þeim tilgangi að gera þær fréttir sem þeir flytja trúverðugari, en þetta er gert í gegnum The European Broadcasting Union (EBU) þ.e.a.s. Samband evrópskra sjónvarpsstöðva. Þetta var meðal þess sem fram kom í spjallinu í símatímanum í morgun en þar ræddu Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri og Pétur Gunnlaugsson um fjölmiðla og tjáningarfrelsið og samræmdan fréttaflutning meginstraumsmiðla.
Fram kom í spjallinu að samstarfið innan EBU byggi á upplýsingaflæði frá The Trusted News Initiative (TNI) sem gerir sig út fyrir falsfréttagreiningu í rauntíma. Athygli vekur að EBU sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem ákveðin einstefna er sett fram í málum sem varða faraldurinn, bólusetningar og fleira því tengt en í tilkynningunni segir:
„The Trusted News Initiative (TNI) has agreed to focus on combatting the spread of harmful vaccine disinformation, following its recent summit, chaired by BBC Director-General, Tim Davie.“
„The TNI is already working together to tackle to spread of harmful coronavirus disinformation and previously has had success running a rapid alert system during the UK 2019 General Election, Myanmar and Taiwan 2020 General Elections and the US Presidential Election.“
Fram kom í þættinum að með þessu sé meginstraumsmiðlum sem þátt taka í samstarfinu í raun óheimilt að fjalla um bóluefni og bólusetningar á annan hátt en þann sem gefur jákvæða mynd af bólusetningum og almenningur fær ekki að sjá báðar hliðar mála. Í þessu samstarfi er í raun einhverjum óskilgreindum einstaklingum, sem ekki er upplýst um hverjir eru, falið að ákveða hver “ sannleikurinn“ er og á grundvelli ákvarðana þeirra eru öllu kerfinu ætlað að fylgja þeim “ sannleika“ í fréttaflutningi sínum og annarri umfjöllun. Engum sjónarmiðum sem stangast á við þennan “ sannleika“ er heimilt að birtast á miðlunum. Ef gagnstæðum sjónarmiðum er hleypt að er það talið grafa undan trúverðugleika þess “ sannleika“ sem boðaður er og þeirra miðla sem standa að boðun hans.
Hlusta má á spjallið hér að neðan