Hér er saga Jon O’Looney, útfararstjóra í Bretlandi, sem segir frá uppgötvunum sínum um látna, sem komu frá sjúkrahúsum og ber saman við yfirlýsingar yfirvalda og segir að um stórkostlegt svindl sé að ræða. Bæði eru látnir sagðir hafa dáið úr covid, sem hafa dáið af öðrum orsökum og svo er útfararstjórinn dapur yfir því, sem hann kallar „kaldrifjuð morð“ á elliheimilum og öðrum öldrunarstofnunum. Hann heldur því einnig fram, að flestir sem deyji úr Delta afbrigðinu hafi dáið af völdum bólusetninga.
Andlát ekki fleiri en á venjulegu ári
Kemur þetta fram í hálftíma viðtali (sjá myndband neðar á síðunni) og er vel þess virði að hlusta á það. Í þessu viðtali segir Jon O’Looney, forstjóri Milton Keynes Family Funeral Services, að yfir 50 útfararstofur í Bretlandi tóku höndum saman til að takast á við „hina miklu árás dauðsfalla“ af völdum Covid. Það sýndi sig hins vegar að „hin mikla árás“ jók ekki á venjulegar heildartölur látinna. Í staðinn fengu útfararstofurnar venjuleg dauðsföll, sem merkt voru sem Covid, auk mikils fjölda látinna sem var augljóslega „myrtur á hjúkrunarheimilum.“ Var sjúklingum gefin sérstök lyf, sem eru notuð áður en fólk er sett í öndunarvélar en engar öndunarvélar voru á hjúkrunarheimilunum fyrir fólkið.
Fólki gefið lyf sem leiddi til andláta – „Myrt með köldu blóði“
Það þýðir, segir útfararstjórinn, að „þau voru myrt með köldu blóði“ vegna þess að lyfin stöðva öndunina. Hann tók þetta sérstaklega fram, vegna þess að útfararheimili hans þurfti að sækja líkin og hann fann tóm lyfjaglös og engar öndunarvélar voru til staðar, sem að mati útfararstjórans sannar, að morð voru framin með köldu blóði. Síðar í kjölfar bólusetningar gegn Delta afbrigðinu kom flóð dauðsfalla öll merkt sem Covid andlát en voru andlát vegna bólustetninga.
Þessi útfararstjóri segir hlutina umbúðarlaust eins og þeir blasa við honum, segir suma lækna vera morðingja vegna þess að þeir vita nákvæmlega, hvað þeir séu að gera.
Smellið á myndbandið hér að neðan til að heyra frásögn útfararstjórans Jon O’Looney.