Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem felur í sér að öllum vínveitingastöðum verði skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum.
Fram kemur í tilkynningu að reglugerð þessa efnis sem ráðherra hefur lagt fram taki gildi mánudaginn 28. september. Á sama tíma verður aflétt tímabundinni lokun kráa og skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu en með fyrrnefndu skilyrði um sætaskyldu. Þá kemur fram að í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis verði aðrar samkomutakmarknir framlengdar óbreyttar í þrjár vikur til og með 18. október næstkomandi.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra eru tíundaðar helstu reglur sem gilda um sóttvarnir í margvíslegri starfsemi og sjónarmiðin að baki, ásamt tilmælum sóttvarnalæknis.
Þar koma meðal annars fram tilmæli sóttvarnalæknis um að rekstraraðilar skemmtistaða, vínveitingastaða, kráa og spilasala skuli tryggja góð loftgæði og stilla hávaða í hóf. Er þá vísað til þess að hávær tónlist ýti undir að fólk tali hátt sem auki hættu á dropasmiti.