Saksóknari ESB opnar á rannsókn á bóluefnainnkaupum Evrópusambandsins

Ríkissaksóknari ESB „The European Public Prosecutor’s Office“ EPPO hefur hafið sakamálarannsókn vegna kaupa ESB á covid-19 bóluefnum. Fyrr á þessu ári kom í ljós, að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins notaði „einka samningaviðræður“ til að tryggja samning ESB við Pfizer. Starfslið hennar neitaði að birta textaskilaboð og tölvupósta milli Von der Leyen og Albert Bourla, forstjóra BioNTech-Pfizer.

EPPO skrifar í fréttatilkynningu:

„EPPO staðfestir að hafin er rannsókn á öflun covid-19 bóluefna til ESB. Þessi einstaka og sjaldgæfa staðfesting er gerð í kjölfar mikils áhuga almennings á málinu. Engar frekari upplýsingar verða gerðar opinberar á þessu stigi.“

Sagðist ætla að uppræta spillingu í eigin garði

Umboðsmaður ESB gagnrýndi Ursula von der Leyen í janúar, þegar starfsmenn hennar fylgdu ekki reglum framkvæmdastjórnar ESB um hreinskilni og gagnsæi í samningaviðræðum við Pfizer. Fólk sem tengist framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er meðal annars sagt hafa hitt hagsmunaaðila, sem ekki voru á opinberri skrá ESB um samtök og fulltrúa, sem reyna að hafa áhrif á ákvarðanir innan ESB.

Formaður framkvæmdastjórnar ESB er einnig sagður hafa beitt „einka samningaviðræðum“ við öflun bóluefnasamninganna. Margir hlutar samninganna eru leynilegir, þar á meðal upplýsingar um verðlagningu. Von der Leyen skrifaði á Twitter í september í ár:

„Ef við viljum vera trúverðug þegar við biðjum umsóknarríkin um að efla lýðræðisríki sín, þá verðum við líka að uppræta spillingu í eigin garði.“ Ekki er ljóst hvort von der Leyen sjálf sætir rannsókn vegna spillingar.

Eins og Útvarp Saga greindi nýlega frá, þá vakti hollenski ESB-þingmaðurinn Roob Roos spurninguna, hvort Pfizer bóluefnið hafi verið sannreynt að stöðva útbreiðslu smits áður en það var sett á markað. Fulltrúi Pfizer svaraði með hlátri og „nei“ og hafa viðbrögðin verið hörð um allan heim, sérstaklega á samfélagsmiðlum.

Albert Bourla, forstjóri Pfizer, átti upphaflega að máta hjá nefnd ESB-þingsins en hann dró sig úr á síðustu stundu og sendi þess í stað fulltrúa sinn. Franska ESB-þingkonan Virginie Joron krefst þess, að bæði Ursula von der Leyen og Albert Bourla geri grein undir eið fyrir því, hvernig stærstu kaup framkvæmdastjórnar ESB hafi í raun farið fram. Samkvæmt Epochtimes, þá sakar hún einnig Ursula von der Leyen um „meðvirka spillingu.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila