Samfélagslega mikilvægt að vera óhræddur við að nota málfrelsið og setja fram málefnalega gagnrýni

Það er samfélagslega mikilvægt í lýðræðissamfélagi að vera óhræddur að nota málfrelsi sitt og setja fram málefnalega gagnrýni þegar við á, því það er ekki endilega besta leiðin að láta berast með straumnum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Arnars Þórs Jónssonar lögmanns í þættinum Í leit að sannleikanum í dag.

Í þættinum ræddi Arnar um málfrelsið og einstaklingsfrelsið og hvernig framtíðarhorfur þess séu í nútímasamfélagi en eins og kunnugt er þá er sótt að þessu frelsi í lýðræðisríkjum víða um heim.

Þá benti Arnar á að aðförin að málfrelsinu sé ekki ný af nálinni því andstæðingar oks ríkisvalds og embættismanna hafa í gegnum tíðina hafa þurft að þola mótbyr og jafnvel ofbeldi, rétt eins og frægasti rithöfundur íslendinga, Snorri Sturluson sem var sannarlega sá maður sem standa vildi vörð um frelsið og galt fyrir þá baráttu sína að lokum með lífi sínu.

Arnar sagði að rétt væri að menn leiddu hugann að því að það að hafa málfrelsi og einstaklingsfrelsið sem viðhaft sé á vesturlöndum séu mikil forréttindi sem standa eigi vörð um, ekki síst í ljósi þess að aðeins um 8% allra landa jarðar búi við slíkt frelsi.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila