Samkomulag um örugga skemmtistaði og viðspyrnu gegn vændiskaupum undirritað

Reykjavíkurborg, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Samtök aðila í ferðaþjónustu og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafa undirritað samkomulag sem miðar að því að gera skemmtistaði borgarinnar öruggari og sporna við vændi á gistiheimilum og hótelum.

Fram kemur í tilkynningu að undirbúningur verkefnisins hafi hafist á árinu 2016 og að vel hafi gengið að að fá starfsfólk skemmtistaða til að sækja námskeið og skrifa undir yfirlýsingu um að gera sitt til að fyrirbyggja allt ofbeldi á skemmtistöðum, en ofbeldi í hvaða mynd sem er ekki liðið, þ.m.t. kynferðisleg áreitni, vændi og mansal, sem og ofbeldi sem byggist á fordómum eða hatri, svo sem í garð innflytjenda eða hinsegin fólks.


Auk fræðslu fyrir dyraverði og starfsfólk felur samkomulagið í sér að farið er í úttektarheimsóknir á skemmtistaði. Markmiðið er að efla öryggi borgarbúa allra.

Forsvarsmenn, rekstraraðilar og starfsfólk skemmtistaða, lögreglan, slökkviliðið og Reykjavíkurborg líta á sig sem samstarfsaðila enda eru hagsmunirnir sameiginlegir, aukið öryggi borgaranna.


Einnig gerði borgin, Samtök ferðaþjónustu (SAF), fyrir hönd hótela og gististaða í Reykjavík, og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með sér samkomulag um að vinna saman að því að uppræta vændi á  hótelum og gististöðum.

Markmið samkomulagsins er að skapa ofbeldislaust og öruggt umhverfi fyrir gesti og starfsfólk hótela og gististaða. Stefnt er að því að vændiskaup verði ávallt tilkynnt og vændisseljendum veittar upplýsingar um þann stuðning sem þeim stendur til boða.



Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila