Samningur um um lögfræðiráðgjöf til innflytjenda undirritaður

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri MRSÍ.

Ásmundur Einar Daðason félags  og barnamálaráðherra og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands (MRSÍ), hafa skrifað undir endurnýjun samnings um lögfræðiráðgjöf til innflytjenda.

Fram kemur í tilkynningu að MRSÍ hafi um sjö ára skeið sinnt lögfræðiráðgjöf til innflytjenda þeim að kostnaðarlausu. Er hún veitt á grundvelli samnings við félagsmálaráðuneytið.

Samkvæmt samningnum hefur skrifstofan fengið árlegan styrk til að greiða túlkum og lögfræðingum sem sinna ráðgjöfinni. Hann var í ár hækkaður úr tæplega sex milljónum króna í 6,5 milljónir vegna aukinna umsvifa.

Þá segir í tilkynningunni að góð reynsla hafi verið af þjónustunni og að aðsóknin að lögfræðiráðgjöfinni fari vaxandi. Eftirspurnin eftir viðtalstímum er stöðug og oftast er fullbókað í tíma.

Innflytjendur leita helst eftir lögfræðiráðgjöf þegar kemur að sifjamálum, atvinnumálum, umsóknum um ríkisborgararétt og dvalarleyfi.

Síðastliðið ár hefur innflytjendum verið boðið upp á viðtöl í Bjarkarhlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis í Reykjavík. Fyrirhugað er að bjóða upp á sömu þjónustu í Bjarmahlíð sem er samskonar miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi. Þá er fyrirhugað að MRSÍ muni veita reglulega lögfræðiráðgjöf til innflytjenda í nýrri ráðgjafastofu fyrir innflytjendur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila