Samstarf við ESB forgangsverkefni Norðurlandaráðs – formleg tengsl við ESB-þingið hafin

Svönunum er beint inn í skjaldborg stjarnanna. Nú verður saumað enn fremur að þeim ríkjum sem áfram þrjóskast við að ganga með í Evrópusambandið. (Myndin er tilbúningur).

Norrænt samstarf fer undir hatt ESB. Lýsir Norðurlandaráð því sem forgangsverkefni að efla tengslin við ESB og hefur hafið formleg samstarf við ESB-þingið. Markmiðið er að samstarf norrænna ríkja verði hluti af ESB-samstarfinu. Eftir að ESB tekur yfir málefni Norðurlanda þrengist enn frekar að þeim norðurlöndum sem ekki eiga aðild að ESB eins og Noregi, Íslandi og Grænlandi. Græni sósíalisminn verður allsráðandi.

Í nýrri tilkynningu á heimasíðu Norðurlandaráðs segir Bertil Haarder, forseti ráðsins 2021:

„Við höfum nú tekið afar mikilvægt skref með því að koma á fót árlegu samtali við Evrópuþingið. Nánara samstarf við ESB er meðal forgangsmálefna í stefnu Norðurlandaráðs í alþjóðamálum og við fögnum því að hafa nú tekið áþreifanlegt skref framávið. Það sem á sér stað í ESB skiptir öll Norðurlöndin miklu máli, jafnvel þótt löndin séu ekki öll aðilar að ESB þannig að nánara samstarf er afar jákvætt.“

Oddný Harðardóttir formaður þingflokks Samfylkingarinnar tók þátt í fundinum með ESB

Á árlegum fundum verður meðal annars rætt um Norðurslóðir, ráðstefnu um framtíð ESB, sjálfbærniverkefni ESB, Green Deal, og upplýsingaóreiðu og netöryggi. Þá geta önnur málefni líðandi stundar komið til umræðu, eftir því hvað um er að vera hverju sinni.

Unnið hefur verið að því að auka samstarfið við ESB allar götur síðan 2017 þegar Norðurlandaráð kom á fót skrifstofu í Brussel. Árið 2019 var ákveðið í forsætisnefnd að leita eftir formlegu þingsamstarfi við ESB-þingið. Í apríl 2020 var send beiðni þess efnis og hún var samþykkt í maí sama ár. Þá var einnig rætt um hvernig hægt væri að styrkja samstarf ESB-nefnda og Norðurlandaráðs.

EES-sendinefnd ESB-þingsins (DEEA) verður samstarfsaðili Norðurlandaráðs hjá ESB. Þátttakendur í fundinum með ESB-þinginu voru Bertel Haarder, Annette Lind, varaforseti og skýrslugjafar forsætisnefndar um ESB, Oddný Harðardóttir og Linda Modig.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila