Seðlabankinn hækkar vexti um 1%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,75%. Þetta segir í tilkynningu frá Seðlabankanum

Í tilkynningunni segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi nokkru meiri hagvöxtur verið á fyrsta fjórðungi ársins en gert var ráð fyrir í maíspá Peningamála. Vísbendingar séu jafnframt um að þróttur innlendra umsvifa verði áfram kröftugur og hlutfall fyrirtækja sem segjast skorta starfsfólk hefur ekki mælst hærra frá árinu 2007. Á móti vegur að væntingar bæði heimila og fyrirtækja um efnahagsframvinduna hafa heldur dalað og töluverð óvissa er um alþjóðlegar efnahagshorfur.

Verðbólga jókst í maí og mældist 7,6%. Enn sem fyrr vegur hækkun húsnæðisverðs og annarra innlendra kostnaðarliða þungt auk þess sem alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur hækkað mikið. Verðhækkanir eru á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur aukist. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað á flesta mælikvarða og eru yfir verðbólgumarkmiði.

Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.

Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 6,50%
2. Lán gegn veði til 7 daga 5,50%
3. Innlán bundin í 7 daga 4,75%
4. Viðskiptareikningar 4,50%

Hér að neðan má sjá hlekk sem hægt er að smella á til þess að horfa á fund Seðlabankans vegna yfirlýsingar nefndarinnar þar sem farið verður yfir helstu atriði og rökstuðnings Seðlabankans. Fundurinn hefst kl.09:30.

Smella hér til þess að horfa

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila