Seðlabankinn lækkar vexti – Áfram gripið til þeirra ráða sem til eru gegn neikvæðum Covid áhrifum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 0,25%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum sem send var fjömiðlum í morgun. Í tilkynningunni kemur fram að með lækuninni verði meginvextir bankans á sjö daga bundnum innlánum því 0,75%.

Í rökstuðningi fyrir ákvörðun bankans segir að mikil fjölgun COVID-19-smita á haustdögum og hertar sóttvarnir valdi því að dregið hefur úr þeirri viðspyrnu í efnahagslífinu sem hófst á þriðja fjórðungi ársins eftir sögulegan samdrátt á öðrum ársfjórðungi. Efnahagshorfur hafi því versnað og gerir nóvemberspá Peningamála ráð fyrir 8,5% samdrætti landsframleiðslu á þessu ári sem er ríflega 1 prósentu meiri samdráttur en spáð var í ágúst. Þá segir að einnig sé spáð minni hagvexti á næsta ári. Óvissa um efnahagshorfur er mikil og mun þróun efnahagsmála að töluverðu leyti ráðast af framvindu farsóttarinnar.

Þá segir að Peningastefnunefnd muni áfram nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða, m.a. kaup Seðlabankans á ríkisskuldabréfum, til að styðja við þjóðarbúskapinn og tryggja að lausara taumhald peningastefnunnar miðlist með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila