Segir búið að semja um að Þórdís Lóa taki við borgarstjórastólnum

Jón Kristinn Snæhólm alþjóða-stjórnmálafræðingur.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í borginni mun taka við af Degi B. Eggertssyni sem borgarstjóri Reykjavíkur á miðju kjörtímabili. Þetta fullyrðir Jón Kristinn Snæhólm alþjóða-stjórnmálafræðingur, en þetta kom fram í máli Jón í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Pétur Gunnlaugssonar. “ þetta er bara vitað, þau munu þræta fyrir þetta núna og kannski er ég að eyðileggja þetta fyrir þeim en hrossakaupin eru þannig að þau geta ekki leyft þessum meirihluta að falla, því að braggamálið og hvernig borgarstjóri hefur látið aðra taka slaginn og sett aðra flokka í víglínuna og hent einum af sínum embættirmönnum á gaddavírinn er alveg nóg til að slíta svona meirihlutasamstarfi„,segir Jón. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila