Segir góða mætingu á fyrirlestur Robert Spencer sýna fram á að fólk láti ekki kúga sig

Dr. Ólafur Ísleifsson.

Góð mæting á fyrirlestur Roberts Spencer felur í sér þau skilaboð að fólk láti ekki kúga sig til þess að hætta að tjá sig. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Dr. Ólafs Ísleifssonar í síðdegisútvarpinu í gær en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Eins og kunnugt er vakti fyrirlestur þeirra Roberts Spencer og Christine Williams upp mikil viðbrögð og mætti mikill fjöldi fólks á fyrirlesturinn. Lítill hópur manna mætti einnig til þess að mótmæla því að fyrirlesturinn færi fram en Ólafur segir að mótmælin hafi lítil áhrif hafa haft á þá sem sóttu fyrirlesturinn “ menn skulu átta sig á því að þetta er Ísland, þetta er land frjáls borins fólks og þetta er land þar sem fólk lætur ekki bjóða sér að það sé ákveðið fyrir það hvernig það hugsar, hvernig það talar eða hverjir fá að taka til máls og hverjir ekki, og þessi mikla fundarsókn felur einnig þessi skilaboð í sér„,segir Ólafur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila