Segist hafa sýnt mikinn dómgreindarskort

Gunnar Bragi Sveinsson.

Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna Klaustursmálsins þar sem hann segir meðal annars hafa sýnt mikinn dómgreindarskort og hafa brugðið þegar hann hafi áttað sig á orðfærinu sem hann viðhafði og að taka muni langan tíma að vinna úr málinu með vinum og fjölskyldu. Þá segir í yfirlýsingunni „ Ég harma að hafa sært samstarfsfélaga mína og fleiri og tek ábyrgð á hegðun minni. Vil ég þó segja að mistök gerum við manneskjurnar víst og er öllu jafna auðveldara að dæma en að fyrirgefa. „Sá yðar er syndlaus er kasti fyrsta steininum“ Ég mun hafa það í huga hér eftir og hvet ykkur til þess sama. Ég vona að hlutaðeigandi fyrirgefi mér þessa hegðun en vegna hennar hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá þingstörfum„,segir Gunnar Bragi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila