Í símatímanum í dag fjölluðu þau Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri og Pétur Gunnlaugsson meðal annars um matvælaöryggið og mikilvægi þess fyrir þjóðina, ekki síst á tímum sem þessum sem nú ganga yfir.
Arnþrúður greindi frá því í þættinum að Guðni Ágústsson hefði einmitt skrifað grein í Morgunblaðið í dag um matvælaöryggið
“ ég sé það að guðfaðir matvælaöryggis á Íslandi Guðni Ágústsson ritar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann bendir á að 90% alls matar hér á jörðinni er framleidd í landbúnaði, þetta er kannski eitthvað sem maður hugsar mikið um daglega en þetta er auðvitað rétt hjá Guðna„,segir Arnþrúður.
Arnþrúður sagði að málið væri umhugsunarvert fyrir núverandi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra
“ og í raun ríkisstjórnina alla að íhuga þetta vel, hversu mikilvægt matvælaöryggið er, ekki síst á tímum sem þessum„.
Skortur á fréttum frá Skandinavíu
Þá var einnig fjallað í þættinum um fjölmiðla, og hversu fáar fréttir berast frá stóru miðlunum hérlendis af fréttum t,d frá Skandinavíu
“ það er átakanlegt hvað það kemur lítið af norrænum fréttum hingað til Íslands og því er farið framhjá mörgu, það er einna helst hér á Sögu þar sem einhverjar norrænar fréttir eru að koma, til dæmis frá Gústaf Skúlasyni„.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.