Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn sátt sem fyrirtækið hafði gert við Samkeppniseftirlitið.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að í ákvörðuninni komi fram að mikill verðmunur og ólík viðskiptakjör við sölu á Enska boltanum á Símanum Sport (línulegt áskriftarsjónvarp), eftir því hvort hann er boðinn innan Heimilispakka Símans eða einn og sér í stakri áskrift, hafi brotið gegn þeim skilyrðum sem hvíla á fyrirtækinu.
Fram kemur að skilyrðin sem Síminn braut gegn séu eftirfarandi:
- Skilyrði 19. og 20. gr. í sátt frá 23. janúar 2015 sem gerir Símanum skylt að aðgreina ólíka þjónustuþætti m.a. þannig að þeir séu nægilega aðgreindir og óháðir hverjir öðrum í verði og öðrum skilmálum. Sú sátt er að stofni til frá árinu 2013 og var gerð vegna sjö rannsókna sem þá voru yfirstandandi, sem og vegna ítrekaðra brota Símans sem Samkeppniseftirlitið hafði staðreynt á árunum þar á undan. Nánari umfjöllun um þetta er að finna hér.
- Skilyrði 3. gr. í sátt frá 15. apríl 2015 sem bannar Símanum að selja fjarskiptaþjónustu og línulegt áskriftarsjónvarp tvinnað saman eða á kjörum sem jafngilda slíkri hegðun. Þetta ákvæði er að stofni til úr sátt frá árinu 2005. Þá skuldbatt Síminn sig til að grípa ekki til tiltekinna aðgerða þegar fyrirtækið tók yfir Íslenska sjónvarpsfélagið (Skjáinn). Sáttin frá 2005 var endurskoðuð árið 2015 en fyrirmælin í 3. gr. héldu sér, sbr. nánar hér. Á árinu 2012 staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Síminn hefði brotið sömu fyrirmæli í sáttinni frá 2005 og staðreynt er í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í dag.
Fram kemur í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að brot Símans séu alvarleg og séu til þess fallin að skaða hagsmuni almennings til lengri tíma, á mörkuðum sem skipti neytendur og efnahagslífið miklu máli.
Í ljósi brotanna þótti rétt að beita sektum og var Síminn sektaður um alls 500 milljónir króna
Smelltu hér til þess að skoða úrskurð Samkeppniseftirlitsins