Skiptar skoðanir um hvort breska samveldið sé að falli komið

Skiptar skoðanir voru meðal þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu um hvort breska samveldið væri að falli komið en þó voru í við fleiri sem töldu að svo væri ekki. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Telur þú að breska samveldið sé að falli komið?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 50%

Já 42,4%

Hlutlaus 7,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila