Könnun: Vilja ekki að Alþingi samþykki þriðja orkupakkann

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að Alþingi samþykki þriðja orkupakkann. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni undanfarna tvo sólarhringa.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan er laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Alþingi að samþykkja þriðja orkupakkan?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei 91%

Já 8,1%

Hlutlaus 0,9%


Atkvæði 817

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila