Skóla og frístundastarf leggst niður í Seljahverfi vegna fjölda smita

Allt skólastarf fellur niður í Seljaskóla á morgun, föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar vegna fjölda Covid-smita hjá bæði nemendum og starfsmönnum. Þá fellur frístundastarf í hverfinu einnig niður sem og íþróttaæfingar ÍR hjá grunnskólabörnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í tilkynningunni segir að í samráði við Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins og skóla- og frístundasvið Reykjavíkur hafi verið tekin sú ákvörðun að fella niður allt skólastarf í Seljaskóla föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17. janúar. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi mikilla smita bæði nemenda og starfsmanna.

Jafnframt hefur sú ákvörðun verið tekin að loka Vinaseli, Regnboga og Hólmaseli og í samráði við ÍR verða engar æfingar hjá grunnskólabörnum.

Staðan er sú að ekki hefur tekist að ná utan um rakningu smita að öllu leyti síðastliðna daga og því er talið skynsamlegt að loka tímabundið til þess að fá betri yfirsýn á stöðuna.

Fundað verður aftur með Almannavörnum, skóla- og frístundasviði, frístunda- og félagsmiðstöðvum og ÍR mánudaginn 17. janúar og staðan endurmetin.

Í bréfi til foreldra sem sent var út nú síðdegis var óskað eftir skilningi og þátttöku í því verkefni að reyna nú að draga úr útbreiðslu veirunnar sem virðist vera á fleygiferð í hverfinu. Ef allir leggjast á eitt er von til að þessi ráðstöfun skili árangri. Forráðamenn eru jafnframt hvattir til að fara í einkennasýnatöku með börn sín við minnstu einkenni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila