Ursula von der Leyen og forstjóri Pfizer, Albert Bourla, höfðu leynileg textaskilaboð sín á milli, sem að lokum leiddu til stærsta bóluefnasamnings, sem ESB hefur nokkru sinni gert. Endurskoðendaréttur ESB spyr í nýrri skýrslu, hvers vegna framkvæmdastjórn ESB neiti að afhenda skilaboðin og önnur atriði varðandi bóluefnasamninginn. Bourla átti að mæta á fund ESB-þingsins um covid-19 síðar í október til að upplýsa þingið um samninginn en hefur á síðustu stundu hætt við að mæta.
ESB-þingið segir stjórnsýslumisferli hjá framkvæmdastjórninni að neita að láta þinginu í té textaskilaboð von der Leyen og forstjóra Pfizers
Endurskoðunarréttur ESB birti skýrslu (sjá neðar á síðunni) um miðjan september, þar sem covid-bóluefnissamningur ESB við Pfizer á síðasta ári er til umræðu. Í skýrslunni dregur maður meðal annars í efa tregðu framkvæmdastjórnarinnar til að kynna persónulegt hlutverk Ursula von der Leyen forseta við gerð samningsins.
New York Times greindi frá því í apríl 2021, hvernig von der Leyen og forstjóri Pfizer, Albert Bourla, höfðu einkasímaskilaboð sín á milli skömmu áður en bóluefnissamningurinn var samþykktur í maí. Blaðamaður óskaði þá eftir því, að framkvæmdastjórnin tæki fram sms-skilaboðin, sem var hafnað.
Emily O’Reilly umboðsmaður ESB-þingsins staðfesti hins vegar, að um stjórnsýslumisferli væri að ræða hjá framkvæmdastjórn ESB. Síðar þegar farið var fram á að fá sms-skilaboðin hafði von der Leyen að sögn eytt skilaboðunum og málið fór ekki lengra.
Von der Leyen eyddi textaskilaboðum um stærsta samning ESB um kaup á 1,8 milljörðum bóluefnaskömmtum Pfizers – viðtekið samningaferli yfirgefið
Endurskoðunarréttur ESB undirstrikar umfang bóluefnissamningsins, sem var mun stærri en fyrri samningar, sem gerðir voru á milli ESB og Pfizer um 600 milljónir bóluefnaskammta. Nýjasti samningurinn tryggði von der Leyen 1,8 milljarða skammta af Pfizer bóluefnum. Nýi samningurinn fylgdi heldur ekki sömu verkferlum og áður.
Fyrstu tveir samningarnir voru undirbúnir af sameiginlegu teymi embættismanna frá framkvæmdastjórninni og sjö aðildarríkjum, sem skiluðu mati og tillögum til bóluefnaráðs með fulltrúum allra aðildarríkja, sem samþykktu samninginn. Nýjasti samningurinn var hins vegar undirbúinn af von der Leyen einni frá ESB og forstjóra Pfizer Albert Bourla, sem lögðu fram sameiginlega tillögu til bóluefnaráðsins.
Samkvæmt Endurskoðunarréttinum átti að halda fund með vísindalegum ráðgjöfum áður en samningurinn var gerður til að móta stefnu ESB um bóluefnin en sá fundur var aldrei haldinn. Rétturinn bað framkvæmdastjórnina um upplýsingar, sem var hafnað eins og segir í skýrslu Endurskoðunarréttarins:
„Við báðum framkvæmdastjórnina um að veita okkur upplýsingar um bráðabirgðaviðræður um þennan samning en fengum þær aldrei.“
Óvenjulegt að framkvæmdastjórnin neiti að láta Endurskoðendaréttinn fá upplýsingar
Endurskoðandi, sem tók þátt í gerð skýrslunnar en vill ekki láta nafn síns getið, telur að það sé afar óvenjulegt að framkvæmdastjórnin sendi ekki frá sér slíkar upplýsingar. Hann segir í viðtali við Politico:
„Við lendum ekki venjulega í þannig ástandi.“
Framkvæmdastjórn ESB hefur ekki viljað tjá sig um samskipti von der Leyen og Bourla. Sandra Gallina, háttsettur heilbrigðisfulltrúi framkvæmdastjórnarinnar, fullyrti fyrir covid-nefnd ESB-þingsins, að samningurinn hafi verið „gerður eins og hver annar samningur.“
„Samningarnir voru í engu frábrugðnir neinum öðrum samningum. Ég sé engan mun. Það voru kannski öðruvísi undirbúningsviðræður.“
Endurskoðunarréttur ESB getur ekki krafist þess að framkvæmdastjórnin leggi fram frekari upplýsingar um hin meintu og eyddu SMS-skilaboð en ESB-þingið getur lýst vanþóknun sinni á málinu. Covid-nefnd ESB-þingsins kemur saman 10. október n.k. og m.a. ræða hvernig koma megi í veg fyrir heimsfaraldur í framtíðinni.
Skapar þá tilfinningu að ESB sé í vasa lyfjarisa
Bourla átti að koma á fund nefndarinnar og formaður nefndarinnar og belgíski jafnaðarmannaþingmaðurinn Kathleen van Brempt, lýsti því yfir að nefndin vildi spyrja spurninga um samningaviðræðurnar við von der Leyen. Bourla hefur hins vegar hætt við að mæta á síðustu stundu. Van Brempt sagði að það yrði vandræðalegt vegna þess að það myndi vekja þá tilfinningu, að ESB sé langt fjarri og „í vasa fjölþjóðlegra fyrirtækja.“
„Lítum bara á heildarmyndina: Við höfum framkvæmdastjóra, sem gerir persónulega samning við forstjóra risa lyfjafyrirtækis og neitar síðan að birta skilaboðin, sem leiddu til samningsins.“
Talsmaður Pfizer segir að í staðinn fyrir Bourla muni framkvæmdastjóri fyrirtækisins fyrir alþjóðlega þróunarmarkaði, Janine Small, mæta á fund covid-nefndar ESB-þingsins, þar sem hún sé „best til þess fallin að styðja nefndina við að ná markmiðum sínum.“
Skýrsla Endurskoðunarréttar ESB um covid-samningana er á ensku hér fyrir neðan: