Sóttvarnalæknir ítrekar ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann ítrekar þær ráðleggingar sínar um að fólk ferðist ekki erlendis til áhættusvæða vegna COVID-19 að nauðsynjalausu.

Tilkynningin er eftirfarandi: 

Á rúmlega einu ári heimsfaraldurs COVID-19 hafa yfir 130 milljónir manna sýkst af völdum SARS-CoV-2 veirunnar í meira en 200 löndum og dauðsföll eru tæplega 3 milljónir, þar af yfir 900 þúsund dauðsföll í Evrópu. Sóttvarnalæknir vill ítreka ráðleggingar gegn nauðsynjalausum ferðalögum íbúa Íslands til áhættusvæða vegna COVID-19. Öll lönd og svæði heims nema Grænland eru skilgreind af sóttvarnalækni sem áhættusvæði. Áhættumat sóttvarnalæknis er samhljóða áhættumati Sóttvarnastofnunar Evrópu. Í mörgum löndum Evrópu er smittíðni há eða mjög há með dreifingu á nýjum afbrigðum veirunnar (sérstaklega svokölluðu B.1.1.7 afbrigði, kennt við Bretland). Bólusetning er enn skammt á veg komin í mörgum ríkjum og því eru ýmsar ferðatakmarkanir í gildi sem og takmarkanir innanlands í flestum löndum sem oft breytast með skömmum fyrirvara.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila