Spillingin á Íslandi meiri en mig hafði nokkurn tíma grunað

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR

Svik og prettir virðist vera nokkurs konar þjóðaríþrótt á Íslandi og spillingin hér á landi er mun meiri en mig nokkurn tíma grunaði„, segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sem var gestur Ernu Ýrar Öldudóttur í síðdegisútvarpinu í dag.

Ragnar ræddi í þættinum um málefni lífeyrissjóðanna sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á í gegnum tíðina, sér í lagi fjárfestingar þeirra sem hann segir oft vera á hæpnum forsendum. Hann segir að þegar upp komi grunur um eitthvað misjafnt innan lífeyrissjóðanna sem þarfnist nánari skoðunar við ríki skyndilega mikil þöggun 

það er ekkert gert, það virðist ekki vera nein siðferðiskennd eða vilji hjá stjórnum lífeyrissjóða til þess að fara í, fletta ofan af og rannsaka eða láta reyna á fyrir dómstólum skaðabóta eða refismál almennt, það er bara enginn vilji til þess“ segir Ragnar Þór.

Ragnar Þór nefnir dæmi máli sínu til stuðnings

hvað hafa lífeyrissjóðirnir farið í mörg skaðabóta eða endurkröfumál frá árinu 2008? , nefnilega engin, ekki eitt einasta„,segir Ragnar.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila