Sérstakur starfshópur gegn hatursorðræðu sem Katrín Jakobsdóttir boðaði í lok maí síðastliðinn að tæki til starfa innan skamms mun hefja störf í næstu viku. Starfshópurinn samanstendur að stærstum hluta af stjórnmála og embættisfólki úr ýmsum áttum.
Starfshópnum er ætlað að að bregðast við vísbendingum um sem Katrín Jakobsdóttir heldur fram að séu til um meinta vaxandi hatursorðræðu hér á landi. Hverjar vísbendingarnar séu og hver sér um að skrá þær og halda utan um tölfræði þeirra eru reyndar hins vegar á huldu og hafa engar útskýringar eða nánari upplýsingar um það verið gefnar út.
Starfshópinn skipa eftirfarandi einstaklingar:
Dagný Jónsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar af forsætisráðuneytinu
Áshildur Linnet, félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu
Hákon Þorsteinsson, dómsmálaráðuneytinu
Jón Fannar Kolbeinsson, Jafnréttisstofu
Lenya Rún Taha Karim, skipuð án tilnefningar af forsætisráðuneytinu
Margrét Steinarsdóttir, Mannréttindaskrifstofu Íslands
Nichole Leigh Mosty, Fjölmenningarsetri
Ólafur Örn Bragason, embætti ríkislögreglustjóra
Rán Ingvarsdóttir, skipuð án tilnefningar af forsætisráðuneytinu
Stefán Snær Stefánsson, mennta- og barnamálaráðuneyti
Þórður Kristjánsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Varamenn eru:
Anna Lilja Björnsdóttir, Jafnréttisstofu
Donata Honkowicz Bukowska, mennta- og barnamálaráðuneyti
Eyrún Eyþórsdóttir, embætti ríkislögreglustjóra
Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, Mannréttindaskrifstofu Íslands
Kristín Jónsdóttir, dómsmálaráðuneyti
Kristín Ólafsdóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, Fjölmenningarsetri
Stefán Daníel Jónsson, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti