Daginn áður en uppþotið varð við Bandaríkjaþing og ráðist inn í þinghúsið 6. janúar sendi Nations in Action frá sér fréttatilkynningu um að starfsmaður ítalska öryggisfyrirtækisins Leonardo SpA hafi viðurkennt í yfirheyrslu að hafa hlaðið upp leiðbeiningum um hvernig ætti að færa yfir atkvæði frá Donald Trump til Joe Biden til þess að Biden „sigraði í forsetakosningunum.“ Útvarp Saga segir hér frá þessarri frétt, þar sem umræðan um efni kosningsvindlsins hefur að mestu horfið í ofstækisfullum árásum aðallega Demókrata á stjórnmálaandstæðinga sína með fáheyrðum ásökunum um „misheppnaða valdaránstilraun“ Bandaríkjaforseta og að hann „væri bilaður og ætlaði að nota kjarnorkuvopn gegn lýðræðinu og Bandaríkjamönnum“ og að þeir þingmenn sem vildu ræða kosningasvindlið á þinginu væru haldnir „rasískri hvítri drottnunarstefnu.“
„Það er ekki hægt að láta íhlutun glæpamanna í bandarískar kosningar viðgangast“.
Nations in Actions berst gegn spillingu, valdamisnotkun og kosningasvindli segist hafa sannanir fyrir því að yfirgripsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, þar sem miklu magni stafrænna atkvæða Trumps var stolið í atkvæðavélum og flutt yfir til Bidens í staðinn. Starfsmaður alþjóða varnarmála- og öryggisfyrirækisins Leonardo SpA staðfesti fyrir rétti að tölvukerfi fyrirtækisins og hernaðarleg gervitungl hafi verið notuð við svindlið.
Í þættinum America Can We Talk segir Maria Zack frá Nations in Action að hún sé sannfærð um að Joe Biden hafi unnið kosningarnar með svindli. Hún hefur afhent þingmönnum í Washington frásögn af málinu og segir að „draga verði þá sem unnu að kosningasvindlinu í Bandaríkjunum fyrir dómstóla.“
Uppljóstrarinn viðurkennir að hafa hlaðið upp forritinu sem stal atkvæðum frá Trump og flutti yfir til Biden
Starfsmaðurinn uppljóstraði að það var hann sjálfur sem sendi leiðbeiningarforrit til að framkvæma atkvæðaþjófnaðinn gegnum gervihnött í eigu Leonardo SpA, áfram til Þýskalands og síðan aftur tilbaka til Bandaríkjanna. Þar með steig enn einn uppljóstrarinn fram á vettvang sem vitnar um kosningasvindlið í Bandaríkjunum. Zack segir „að þrátt fyrir að Leonardo SpA hafi fengið yfir einn milljarð Bandaríkjadala síðasta ár, þá tóku þeir þátt í að stela forsetakosningunum 2020.“ Zack fullyrðir að starfsmenn/maður bæði hjá ítalska sendiráðiðinu í Bandaríkjunum og í ríkisstjórn Ítalíu séu viðriðin málið. Nations in Actions krefst þess að öllum samningum við Laonardo SpA verði sagt upp, að rannsókn fari fram á málinu hjá háttsettum starfsmönnum bandarísku utanríkisþjónustunnar.