Hafa samþykkt undirskriftarsöfnun um deiliskipulag Stekkjarbakka

Stekkjarbakki. Svæðið á Stekkjarbakka sem til stendur að byggja á. Neðra-Breiðholt.

Borgarráð hefur samþykkt erindi Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun með þeim fyrirvara að undirskriftarsöfnunin og íbúakosningin fjalli ekki um lögformlegt gildi deiliskipulagsins fyrir Stekkjarbakka, þar sem slíkt að mati borgarinnar standist ekki lög.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að þann 19. desember síðastliðinn hafi borist erindi stjórnar Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun í Reykjavík en í tilkynningu frá Hollvinasamtökunum kemur fram að ætlunin sé að „knýja fram íbúakosningu um deiliskipulagið fyrir Stekkjarbakka, sem borgarstjórn samþykkti 19. nóvember s.l. og auglýst var í Stjórnartíðindum 25. nóvember“

Í erindi Hollvinasamtakanna kemur fram að hugsun samtakanna sé sú að deiliskipulag Stekkjarbakka verði fellt úr gildi í íbúakosningu. Eins og fram kemur í umsögn skrifstofu borgarstjórnar stenst það að mati borgarinnar ekki lög og því verði deiliskipulag ekki fellt úr gildi með íbúakosningu. Fram kemur í tilkynningu borgarinnar að deiliskipulagið hafi þegar öðlast lögformlegt gildi og verði aðeins breytt með endurskoðun á því í samræmi við málsmeðferðarferla í skipulagslögum og að viðlagðri bótaábyrgð Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðsla gæti hins vegar snúist um það að Reykjavíkurborg myndi hefja endurskoðun á deiliskipulagi, að virtum þessum málsmeðferðarreglum og hugsanlegri bótaábyrð segir í tilkynningu frá borginni

Ekkert er því þannig til fyrirstöðu að mati borgarinnar að fram fari undirskriftarsöfnun og íbúakosning án þess að hún verði beinlínis tengd við þá stjórnvaldsákvörðun sem þegar hefur verið tekin með samþykkt og gildistöku

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila