Stjórn Miðflokksins harmar ákvörðun Birgis um að segja skilið við flokkinn

Birgir Þórarinsson hefur sagt skilið við Miðflokkinn

Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins svo stuttu eftir kosningar er áfall fyrir þá sem unnu ötullega fyrir flokkinn í kjördæmi Birgis. Þetta er meðal þess sem segir í yfirlýsingu stjórnar Miðflokksins sem send var fjölmiðlum í kjölfar brotthvarfs Birgis Þórarinssonar úr þingflokknum, en hann er genginn til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Hér að neðan er yfirlýsingin í heild.

Yfirlýsing stjórnar Miðflokksins

Stjórn Miðflokksins harmar þá ákvörðun Birgis Þórarinssonar að yfirgefa þingflokk Miðflokksins nú strax að loknum kosningum og áður en þing hefur verið sett.

Brotthvarf þingmannsins er fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp semborið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi og unnið mikið og óeigingjarnt starf í kosningabaráttunni. Í því samhengi er ákvörðunþingmannsins mikil vonbrigði.

Stjórn Miðflokksins færir flokksmönnum þakkir fyrir mikla og ósérhlífna vinnu í aðdraganda kosninga ekki hvað síst flokksmönnum í Suðurkjördæmi sem lögðu mikið á sig við að afla stefnu flokksins fylgis í kosningunum.

Flokkurinn metur framlag þessa fólks mikils og mun áfram berjast fyrir hugsjónumþess. Breytt skipan þingflokksins dregur ekki úr getu hans til að fylgja eftir þeim grunngildum og hugsjónum sem sameina okkur sem flokk.

9. október 2021

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Bergþór Ólason

Einar Birgir Kristjánsson

Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir

Karl Gauti Hjaltason

Þorsteinn Sæmundsson

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila