Svíþjóð: Eftir fund lögreglunnar á föstudag: 5 skotárásir, 2 drepnir, einn við dyr dauðans, 2 sprengjuódæði…. og svo hversdagslegt smáræði eins og rán og nauðganir…

Varla hafði lögreglan í Svíþjóð lokið við alvarlegan blaðafund sinn á föstudag fyrr en byssurnar geltu á ný. Bara þessa helgi hafa a.m.k. 5 skotárásir og tvö sprengjuódæði átt sér stað, 2 verið drepnir og einn á milli heims og helju:

Hässleholm: Skömmu fyrir klukkan 01:00 aðfaranótt mánudags var lögreglunni tilkynnt um skotárás á Skolgatan. Fórnarlambið, karlmaður á tvítugsaldri sem fluttur er á sjúkrahús með alvarleg meiðsli. Í nótt var lögreglan á staðnum og vann við tæknirannsókn og vitnaviðtöl.

Halmstad: Klukkan 01 í nótt sprungu tvær sprengjuhleðslur við inngangsdyr stigahúsa í Vallås-íbúðahverfinu. Þetta gerðist með nokkurra mínútna millibili. Enginn slasaðist en efnislegar skemmdir voru töluverðar.

Gautaborg: Skömmu eftir klukkan 3 í nótt var lögreglan kölluð á heimilisfang í Hålanda, þar sem einhver skaut inn í einbýlishús í gegnum tvo glugga. Þrír voru á heimilinu en enginn slasaðist. Skothylki fundust en enginn er grunaður og lögreglan rannsakar atvikið sem tilraun til manndráps.

Malmö: Síðar í nótt, klukkan 3.46 var skotárás við bústað við Augustenborgsgötuna, enginn særðist.

Landskrona: Laugardagskvöld fannst ungur maður skotinn en lifandi í bíl í miðbænum.

Södertälje: Föstudagskvöld var 19 ára unglingur drepinn í skotárás i Ronna hverfinu, sem er þriðja skotárásin á fjórum sólarhringum í Södertälje.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila