Skortur á öndunargrímum fyrir starfsfólk sjúkrahúsa er nú svo mikill í Svíþjóð að mörg héruð segja starfsmönnum sjúkrahúsa að þeir eigi að hjúkra smituðum sjúklingum án öndunargríma og það dugi að vera með hlíf fyrir framan andlitið. Hefur þetta leitt til mikillar umræðu í Svíþjóð vegna frétta um andlát lækna og hjúkrunarkvenna t.d. á Ítalíu en yfir 33 læknar hafa dáið þar í baráttunni gegn veirunni á undanförnum vikum.
Alls staðar er verið að fjölga rúmum fyrir kórónuveika og herinn á fullri ferð með lækna og lyfjaaðstoð og uppbyggingu bráðabirgða sjúkrahúsa. Um 5 000 læknar og hjúkrunarnemar svöruðu neyðarkalli Stokkhólmsborgar um fleiri starfsmenn á sjúkrahúsin. Búast Svíar við gríðarlegri aukningu sjúklinga komandi vikurnar og svo mikilli að aðeins verði hægt að taka á móti hluta þeirra sem á hjálp þurfa að halda.
Prófessor Lars Sandman hjá háskólanum í Linköping hefur leitt starfshóp Félagsmálastofnunar sem á rúmri viku hefur tekið fram reglur um forgangsröðun í rúm og öndunarvélar gjörgæsludeilda fyrir sjúkrahúsin. Nýju reglurnar kallast ”Þjóðarreglur um forgangsröðun á gjörgæslu við óvenjulegar aðstæður.” Lars Sandman segir að:
”Þetta getur gerst t.d. í stærri umferðaslysum, þegar starfsgetu skortir en núna verður að vísa mörgum frá í lengri tíma sem er einstakt. Maður sér ekki ljósið við endann á göngunum eins og í umferðaslysinu.”
Reglurnar skipta sjúklingum í þrjá flokka þar sem flokkur þrír eru þeir sem hafa minnstu líkur á að lifa af sjúkdóminn. Í flokki eitt eru þeir sem taldir eiga stærstu möguleika á að lifa.
”Við venjulegar aðstæður er hægt að lenda í því að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir og forgangsraða en þá er það oftast í flokki þrjú. Núna getur það orðið að við verðum að forgangsraða í flokki eitt, heilsugæslan getur þurft að vísa frá þeim sjúklingum sem annars hafa miklar líkur á að lifa af. Líklega er Stokkhólmur að nálgast slíka stöðu en aðrir eru eitthvað á eftir.” Sjá nánar hér