New York Times lýsir aðferðum Svía í baráttunni gegn kórónuveirunni sem fullkomnu glapræði sem bætist ofan á þegar flekkaða ímynd landsins á alþjóðavísu. Svíþjóð er núna lýst sem „aðvörun til umheimsins” að sögn blaðsins. Þrátt fyrir háar dánartölur kemur efnahagur Svíþjóðar síst betur út en hjá öðrum löndum.
Dagens Industri hefur það eftir fjármálafyrirtækinu Bisnode, að flest fyrirtæki fara í gjaldþrot í Svíþjóð á Norðurlöndum (Ísland ekki með talið).
New York Times segir að þrátt fyrir að fleiri hafi dáið í covid-19 í Svíþjóð en í grannríkjunum, þá komi það ekki fram í efnahagstölum: „Svíar hafa bókstaflega ekki haft neinn hagnað af þessari leið. Þetta er sjálfskaparvíti sem ekki hefur haft neinn efnahagslegan ávinning í för með sér.”
Miðað við áætlanir seðlabanka landanna mun sænskur efnahagur skreppa meira saman í Svíþjóð en í Danmörku með mun færri látna í covid-19. Noregur, sem hefur aðeins tólfta hluta andláta miðað við Svíþjóð, spjarar sig betur efnahagslega. Af 10.538 fyrirtækjum sem fóru í gjaldþrot á Norðurlöndum fyrri árshelming í ár – Ísland ekki meðtalið, þá fóru 3.786 sænsk fyrirtæki í gjaldþrot sem er 16% aukning miðað við sama tíma í fyrra. Gjalþrot jukust um 11, 3% í Finnlandi með 887 gjaldþrot í ár.
Í Noregi jukust gjaldþrotin í ár einungis með 1,8% með 2.820 fyrirtækjum í gjaldþrot miðað við fyrri árshelming 2019. Í Danmörku hafa 2.820 farið í gjaldþrot í ár sem er minnkun með 36,4% miðað við sama tíma 2019. Danmörk hefur því samkvæmt þessum tölum spjarað sig gegnum kórónukreppuna best allra efnahagslega á Norðurlöndum. Tomas Hedenius markaðsstjóri hjá Bisnode segir hugsanlega skýringu á mismuni milli Norðurlandanna vera í því, hvernig ríkisstyrkur sé veittur á mismunandi hátt og umfangi í ríkjunum.