Svíþjóðardemókratar láta ESB fá það óþvegið : „Þið eyðileggið Evrópu og hafið skapað villibráðakynslóð í Svíþjóð“

Charlie Weimers, ESB-þingmaður Svíþjóðardemókrata, er langt í frá ánægður með innflytjendastefnu Evrópusambandsins og telur að með henni sé verið að eyðileggja Evrópu.

Evrópusambandsþingmaðurinn Charlie Weimers frá Svíþjóðardemókrötum réðst hart að „bilaðri fjöldainnflutningsstefnu“ í umræðu á Evrópusambandsþinginu. Hann krefst að ESB verndi sína eigin íbúa í Evrópu. Sjá má og heyra ræðu Charlie Weimers á myndbandi hér að neðan.

Verið var að ræða „mannúðarástandið“ hjá innflytjendum við ytri landamæri ESB, þegar Svíþjóðardemókratinn Charlie Weimers tók til orða og gagnrýndi harðlega afleiðingar af margbreytileikastefnu Evrópusambandsins. Upplýsti hann þingheim um voðaverkin og pyndingu tveggja unglingspilta í kirkjugarðinum í Solna í fyrrasumar.

Hvar er samúðin með eigin meðborgurum?

„Um miðja nótt voru tveir sænskir piltar pyndaðir með hnífum. Þeim var haldið nöktum í kvikindislegri prísund og nauðgað með trégreinum af tveimur sadískum innflytjendum. Þeim var sagt að þeir myndu deyja“ sagði Weimers og hélt áfram:

„Hér safnist þið saman til að ræða og fella krókudílatár fyrir þá sem þjást við landamærin. En hvar er samúðin með þeim sem verða fórnarlömb vegna gegndarlausrar innflytjendastefnu í Evrópu? Innfæddum borgurum er nauðgað, misþyrmt og þeir pyndaðir. Saklaust fólk er hálshöggið, það verður fyrir sprengjuódæðum og er stungið með hnífum í nafni íslams.“

Villibráðakynslóðin

Weimers segir innflytjendastefnu ESB hafa skapað nýja tegund barna í Svíþjóð sem hann kallar „Villibráðakynslóðina,“ vegna þess að þau eru rænd, þeim misþyrmt, þau eru myrt, nauðgað og pynduð af innflytjendum. „Og drengirnir tveir eru ekki þeir einu. Í tilraun ykkar til að bjarga öllum, þá mun þessi stofnun ekki bjarga neinum – en í staðinn eyðileggið þið Evrópu.“

Vinstrifrjálslyndir, hafið þið heyrt talað um niðurlægingarrændu drengina í Solna? Þeir tilheyra villibráðakynslóðinni. Þegar þið farið ánægð heim til ykkar eftir að hafa komið á auknum fólksinnflutningi – hugsið þá aðeins um fórnarlömb innflytjendastefnu ykkar. Munu þau fyrirgefa ykkur?“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila