Telja vinnu stýrihóps um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu ekki verða til þess að bæta stöðu örorkulífeyrisþega

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja vinnu stýrihóps um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu ekki verða til þess að bæta stöðu örorkulífeyrisþega. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt rétt fyrir hádegi í lok þáttarins Línan er laus en í þessari könnun var spurt: Telur þú vinna stýrihóps um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu verði til þess að bæta stöðu örorkulífeyrisþega?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 88%

Já 9%

Hlutlaus 3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila