Könnun: Flestir sammála um að forseti og Alþingi fari saman með löggjafarvaldið

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er sammála því að forseti og Alþingi fari saman með löggjafarvaldið, eins og ákvæði í stjórnarskrá segir.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni síðustu tvo sólarhringa. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú sammála ákvæði stjórnarskrár um að Alþingi og forseti fari saman með löggjafarvaldið?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 65,3% 

Nei 29,4%

Hlutlaus 5,3%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila